18 Mars 2010 12:00

Brot 32 ökumanna voru mynduð á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjavíkurveg í norðurátt, á móts við bensínstöð N1. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 365 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.

Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Reykjavíkurvegi var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Reykjavíkurvegi en þá óku hlutfallslega færri, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan hinsvegar 10%.