23 Júlí 2015 22:51

Brot 101 ökumanns var myndað á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjavíkurveg í suðurátt, á móts við Reykjavíkurveg 74. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 234 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 43%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tuttugu og einn ók á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 78.

Vöktun lögreglunnar á Reykjavíkurvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.