29 Júlí 2015 10:47

Brot 134 ökumanna voru mynduð á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjavíkurveg í norðurátt, á móts við Reykjavíkurveg 74. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 322 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 42%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tuttugu og níu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 88.

Vöktun lögreglunnar á Reykjavíkurvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.