25 Apríl 2016 10:29

Brot 110 ökumanna voru mynduð á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjavíkurveg í suðurátt, á móts við Reykjavíkurveg 74. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 382 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tuttugu og átta óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 85.

Vöktun lögreglunnar á Reykjavíkurvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.