18 Ágúst 2017 09:17

Brot 98 ökumanna voru mynduð á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjavíkurveg í suðurátt, við Stakkahraun. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 391 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 82.

Vöktun lögreglunnar á Reykjavíkurvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.