28 September 2007 12:00

Fjörutíu og átta ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í gærkvöld en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vestur á móts við Glitvang í norðurbænum. Meðalhraði hinna brotlegu var 77 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók var mældur á 85 en einn strætisvagn var í hópi þeirra ökutækja sem lögreglan stöðvaði. Honum var ekið á 69 km hraða.

Það voru lögreglumenn á bifhjólum sem önnuðust þetta eftirlit.