19 Febrúar 2020 10:21

Brot 26 ökumanna voru mynduð á Reynisvatnsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reynisvatnsveg í vesturátt, við Kapellustíg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 52 ökutæki þessa akstursleið og því ók helmingur ökumanna, eða 50%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 69 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 88.

Vöktun lögreglunnar á Reynisvatnsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.