22 Júní 2020 21:17

Brot 28 ökumanna voru mynduð á Reynisvatnsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reynisvatnsveg í vesturátt, við Kapellustíg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 52 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 54%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 78.

Vöktun lögreglunnar á Reynisvatnsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigningaskúrir voru á meðan hraðamælingunni stóð.