20 Ágúst 2021 11:09

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Reynisvatnsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reynisvatnsveg í vesturátt, á móts við Kapellustíg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 30 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 47%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 69 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 82.

Vöktun lögreglunnar á Reynisvatnsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.