17 September 2013 12:00

Brot 17 ökumanna voru mynduð á Reynisvatnsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reynisvatnsveg í vesturátt, við Kapellustíg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og því ók helmingur ökumanna, eða 50%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 70 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Reynisvatnsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.