28 Nóvember 2007 12:00

Brot 427 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í gær og í morgun en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, þ.e. yfir gatnamót Sæbrautar og Langholtsvegar. Umrædd vöktun stóð yfir í u.þ.b. tuttugu klukkustundir en á tímabilinu fóru 6.023 ökutæki þessa akstursleið. 7% ökumanna óku því of hratt eða yfir afskiptahraða en við síðustu vöktun á sama stað var hlutfallið 8%. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 75 km/klst sem er ámóta niðurstaða og fékkst við síðustu mælingu. Að þessu sinni voru 62 ökutæki mynduð á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók var á 99. Þarna er 60 km hámarkshraði.