29 Maí 2008 12:00

Brot 434 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í gær og í dag en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, þ.e. yfir gatnamót Sæbrautar og Langholtsvegar. Umrædd vöktun stóð yfir í liðlega sautján klukkustundir en á tímabilinu fóru 6.393 ökutæki þessa akstursleið. 7% ökumanna óku því of hratt eða yfir afskiptahraða Meðalhraði hinna brotlegu var  rúmlega 75 km/klst sem er svipuð niðurstaða og fékkst við síðustu mælingu. Að þessu sinni voru 67 ökutæki mynduð á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók var á 99. Þarna er 60 km hámarkshraði.