28 Nóvember 2008 12:00

Brot 433 ökumanna voru mynduð á Sæbraut frá miðvikudegi (síðdegis) til fimmtudags eða á liðlega 10 klukkustundum. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, þ.e. yfir gatnamót Sæbrautar og Langholtsvegar. Á umræddu tímabili fóru 5.262 ökutæki þessa akstursleið og því ók nokkur hluti ökumanna, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 76 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Áttatíu og þrír óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 112.