28 Nóvember 2008 12:00

Brot 216 ökumanna voru mynduð á Sæbraut á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem ekið var Sæbraut í vestur, gegnt Glitni á Kirkjusandi. Á u.þ.b. einni og hálfri klukkustund, fyrir hádegi, fóru 868 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 76 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fjörutíu og þrír óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 113.