22 Maí 2009 12:00

Hundrað tuttugu og þrír ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Sæbraut á þriðjudagskvöld en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar á þriðjudagskvöld eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 123 ökumanna mynduð á Sæbraut en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í norðurátt, að Holtavegi. Á tæplega einni klukkustund, frá kl. 19.10 til 20, fóru 514 ökutæki þessa akstursleið og því óku 24% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 77 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Þrjátíu og sex óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 110.