7 Mars 2014 12:00

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í suðurátt, á móts við Dugguvog 2. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 767 ökutæki þessa akstursleið og því óku sárafáir ökumenn, eða 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 71 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.