15 Apríl 2019 12:14

Brot 304 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá föstudeginum 12. apríl til mánudagsins 15. apríl. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á tæplega þremur sólarhringum fóru 18.186 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 110.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.