23 Apríl 2019 12:40

Brot 76 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá mánudeginum 15. apríl til þriðjudagsins 23. apríl. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á átta sólarhringum fóru 45.766 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 91 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 128. Tólf ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.