5 Júní 2019 10:09

Brot 141 ökumanns var myndað á Sæbraut í Reykjavík frá þriðjudeginum 28. maí til þriðjudagsins 4. júní. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á einni viku fóru 53.852 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 88 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Níu óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 140. Fjórum ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.