27 Júní 2014 12:00

Brot 106 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík í fyrradag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, að Kringlumýrarbraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 733 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.