15 Júlí 2019 15:09

Brot 170 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 10. júlí til mánudagsins 15. júlí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á fimm sólarhringum fóru 22.572 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 139. Tíu ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.