24 Júlí 2019 12:25

Brot 115 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 18. júlí til þriðjudagsins 23. júlí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á fimm sólarhringum fóru 17.919 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sjö óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 116. Tíu ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.