29 Júlí 2019 14:42

Brot 107 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 25. júlí til mánudagsins 29. júlí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á rúmlega fjórum sólarhringum fóru 23.091 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sex ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.