1 Ágúst 2019 12:16

Brot 48 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá mánudeginum 29. júlí til fimmtudagsins 1. ágúst. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á tæplega þremur sólarhringum fóru 18.158 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fjórum ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.