31 Október 2014 12:00

Brot 777 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá þriðjudegi til miðvikudags. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á einum sólarhring fóru 12.195 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Níutíu og sex óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 100. 

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.