9 Desember 2019 11:11

Brot 58 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 5. desember til föstudagsins 6. desember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á einum sólarhring fóru 7.249 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 94. Fimm ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.