26 Mars 2020 16:35

Brot 61 ökumanns var myndað á Sæbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á móts við Kirkjusand. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 342 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Níu óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 87.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að éljagangur og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.