14 Nóvember 2014 12:00

Brot 181 ökumanns var myndað á Sæbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á milli Kringlumýrarbrautar og Katrínartúns. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 720 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Þrjátíu óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 99. 

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.