24 Júlí 2020 09:48

Brot 28 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá þriðjudeginum 21. júlí til fimmtudagsins 23. júlí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á tveimur sólarhringum fóru 13.547 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 95. Einu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.