15 Janúar 2010 12:00

Brot 415 ökumanna voru mynduð á Sæbraut frá miðvikudegi (síðdegis) til fimmtudags eða á 19 klukkustundum. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, þ.e. yfir gatnamót Sæbrautar og Langholtsvegar. Á umræddu tímabili fóru 6.547 ökutæki þessa akstursleið og því ók nokkur hluti ökumanna, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fjörutíu og níu óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 100.