4 Maí 2021 09:54

Brot 337 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá föstudeginum 30. apríl til mánudagsins 3. maí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á þremur sólarhringum fóru 17.048 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 80 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sex óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 106.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.