11 Maí 2021 15:37

Brot 190 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá föstudeginum 7. maí til þriðjudagsins 11. maí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á hátt í fjórum sólarhringum fóru 22.286 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 81 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 103. Sjö ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.