28 Júní 2021 10:33

Brot 64 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, að Kringlumýrarbraut. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 398 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 76 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Þrettán óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 97.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.