25 Júní 2015 16:24

Brot 97 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á móts við Kirkjusand. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 676 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sex óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 97.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.