4 Ágúst 2021 11:42

Brot 52 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá þriðjudeginum 3. ágúst til miðvikudagsins 4. ágúst. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á tæplega einum sólarhring fóru 4.483 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 90. Tveimur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.