12 Ágúst 2021 09:53

Brot 74 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá mánudeginum 9. ágúst til miðvikudagsins 11. ágúst. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á tæplega tveimur sólarhringum fóru 8.572 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 90. Einu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili og einn ökumaður var staðinn að því að nota farsíma án handfrjáls búnaðar.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.