2 Nóvember 2015 15:22

Brot 106 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, við Kirkjusand. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 589 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tuttugu óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 93.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.