11 Október 2021 12:56

Brot 274 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá föstudeginum 8. október til mánudagsins 11. október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á þremur sólarhringum fóru 20.482 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 108. Þremur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.