25 Október 2021 12:39

Brot 273 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá föstudeginum 22. október til mánudagsins 25. október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á þremur sólarhringum fóru 16.984 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 96. Einu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.