17 Mars 2022 15:09

Brot 25 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, að Klettagörðum. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 427 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 72 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 81.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.