19 Apríl 2022 09:23

Brot 50 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, að Katrínartúni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 648 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 91.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.