4 Maí 2022 09:27

Brot 200 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í norðurátt, að Súðarvogi. Á einni klukkustund, síðdegis, fóru 500 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 40%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 77 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 92.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.