8 Febrúar 2016 11:06

Brot 127 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, að Kringlumýrarbraut. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 553 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fimmtungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tuttugu og þrír óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 93.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.