12 Febrúar 2016 17:52
Brot 92 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, við Kirkjusand. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 656 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fjórtán óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 97.
Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.