8 Mars 2016 10:00

Brot 64 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á móts við Kleppsveg 28. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 506 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.