4 Mars 2010 12:00

Brot 85 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vestur, við Kirkjusand. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 477 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fimmtán óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 91.