11 Október 2016 14:13

Brot 79 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á móts við Íslandsbanka á Kirkjusandi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 597 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fjórtán óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 86.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.