20 Febrúar 2024 16:42
Brot 16 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á móts við Héðinsgötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 489 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 93.
Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.