23 Nóvember 2016 16:10

Brot 77 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í suðurátt, að Skeiðarvogi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 809 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tíu óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 93.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.