25 Október 2017 10:01

Brot 112 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á móts við Kirkjusand. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 661 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tuttugu og einn ók á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 98.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á með hraðamælingunni stóð.